Rafvirki - Orkubú Vestfjarða - Ísafjörður
Orkubú Vestfjarða óskar eftir að ráða metnaðarfullan og
ábyrgan starfsmann í spennandi framtíðarstarf á veitusviði.
Starfsmaðurinn verður hluti af vinnuflokki veitusviðs Orkubús Vestfjarða með
höfuðstöðvar á Ísafirði. Starfsumhverfið
er Ísafjörður og norðanverðir vestfirðir.
Starfssvið:
- Daglegur rekstur flutnings- og dreifikerfis
- Nýframkvæmdir
- Viðhald á há- og lágspennubúnaði
- Reglubundið eftirlit í
veitukerfi
- Bakvaktir
- Önnur tilfallandi verkefni á veitusviði
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf í rafvirkjun
- Sjálfstæði í
vinnubrögðum
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Almenn tölvufærni
Í boði er áhugavert
starfsumhverfi með krefjandi og fjölbreyttum verkefnum hjá traustu
fyrirtæki. Orkubúið sinnir alhliða
orkuvinnslu á Vestfjörðum ásamt dreifingu orkunnar til kaupenda. Starfsmenn eru um 70 talsins og er hópurinn
samheldinn og metnaður mikill.
Ekki hika við að hafa samband og við skoðum í sameiningu hvort við
getum ekki fundið góða leið að farsælu samstarfi. Allar nánari upplýsingar veitir Lind hjá FAST
Ráðningum í síma 552-1606 eða lind@fastradningar.is. Fullum trúnaði er heitið.
Orkubúið vill fjölga konum í störfum hjá fyrirtækinu. Konur sem og karlar eru því hvött til að sækja um starfið.